þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Guðmundur Sigurðsson heimsmeistari öldunga.

Guðmundur Sigurðsson var að ljúka keppni á Heimsmeistaramóti Öldunga
sem haldið er í Frakklandi og gerði sér lítið til og varð
heimsmeistari í sínum flokki, 105 kg flokki 60-64 ára. Guðmundur
snaraði 102 kg og jafnhattaði 138 sem er heimsmet en hann var ekki
hættur og bað um 144 kg á stöngina og lyfti því og setti því aftur
heimsmet í jafnhöttun og einnig í samanlögðu, 246 kg. Guðmundur var
einnig stigahæðsti maður mótsins með 413 stig og er einn fárra sem náð
hafa yfir 400 stig. Hreint stórglæsilegur árangur hjá þessum reynda
lyftingamanni.