föstudagur, september 22, 2006

Íslandsmót og Dómaranámskeið

Íslandsmótið í Lyftingum verður haldið í nýju lyftinga aðstöðunni í Ármanns/Þróttar heimilinu laugardaginn 30. september og hefst það kl. 16:00 en vigtun kl. 14:00.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta og styðja við lyftingamennina okkar.

Daganna 12.-15. október verður haldið dómaranámskeið í lyftingum og eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við Ármann Dan (armannd@gmail.com).